Fjölnota og
skapandi vinnurými.
H9 Studio er fjölnota og skapandi vinnurými á Hafnarbraut 9 í Kópavogi, fyrir fólk sem vill vinna í fallegu, rólegu og faglegu umhverfi.
Hér færðu meira en bara skrifstofu aðstöðu. Við vildum skapa gott og fjölnota vinnurými sem styður við fjölbreytt verkefni hvers og eins. Lögð hefur verið mikil áhersla á hlýlegt andrúmsloft, vandaða aðstöðu og góða upplifun á vinnustaðnum.
Í H9 mætast skapandi einstaklingar, sjálfstætt starfandi sérfræðingar og teymi sem vilja hafa gott utanumhald um vinnuna sína. Hér er pláss til að vinna, funda, skapa og þróa hugmyndir í umhverfi sem styður við það sem þú ert að byggja upp.