Meira en bara
skrifstofa. hljóðver. fundarrými.
Fjölnota og skapandi vinnurými á Hafnarbraut 9 í Kópavogi. Hannað fyrir fólk sem starfar sjálfstætt og vill tilheyra samfélagi fólks í eigin rekstri og skapandi störfum.
Rými
Veldu það sem hentar þér
Föst skrifborðsleiga
Þitt borð, þitt rými. Allt innifalið á föstu mánaðargjaldi.
frá 85.000 kr./mán
Tímabundin skrifborðsleiga
Leigðu borð í 1–3 mánuði án langtímaskuldbindinga.
frá 100.000 kr./mán
Fundarrými
Vel búið fundarrými fyrir allt að 8 manns.
frá 14.900 kr.
Hljóðver
Hljóðeinangrað stúdíó fyrir hlaðvarp, talsetningu og upptökur.
frá 14.900 kr.Af hverju H9 Studio
Allt tilbúið
Rafknúið borð, hraðvirkt net, kaffi, prentari og eldhús. Þú mætir bara og byrjar.
Skapandi samfélag
Markaðsfólk, textahöfundar og sérfræðingar starfa hlið við hlið. Létt og skemmtileg stemning.
Hljóðver
Hljóðdempað upptökustúdíó fyrir hlaðvarp, talsetningu og upptökur.
Umhverfið
H9 Studio er staðsett á fallegasta stað Kópavogs, Kársnesi. Fallegt umhverfi, nálægð við þjónustu og róleg staðsetning sem gerir daginn aðeins betri.
Algengar spurningar
Hvar er H9 Studio staðsett í Kópavogi?+
H9 Studio er staðsett á Hafnarbraut 9 í Kópavogi, með góðu aðgengi og bílastæði við innganginn.
Hvað er innifalið í skrifborðsleigu?+
Í skrifborðsleigu hjá H9 er rafknúið skrifborð, góður stóll, hraðvirkt net, kaffi, te og almenn eldhúsaðstaða, sturtuaðstaða, regluleg þrif og aðgangur að hljóðveri. Allt er tilbúið svo þú getir byrjað strax.
Er hægt að fá tímabundna skrifborðsleigu?+
Já, hjá H9 er hægt að leigja skrifborð tímabundið í 1 til 3 mánuði. Það hentar vel fyrir sjálfstætt starfandi, verkefnabundna vinnu eða þau sem vilja sveigjanlega lausn.
Hvað eru mörg skrifborð til leigu?+
Hjá okkur eru 8 skrifborð til leigu. Það skapar notalegt og rólegt vinnuumhverfi með góðu flæði og skapandi stemningu.
Hentar H9 sem coworking space?+
Já, H9 Studio hentar mjög vel fyrir sjálfstætt starfandi, skapandi einstaklinga og lítil tveggja manna teymi sem vilja faglegt, hlýlegt og vel skipulagt vinnuumhverfi í Kópavogi.
Er fundarrými til leigu hjá H9?+
Já, hjá okkur er fundarrými til leigu fyrir fyrirtæki, teymi og sjálfstætt starfandi sem vilja faglega og notalega fundaraðstöðu í Kópavogi.
Hversu margir komast í fundarrýmið?+
Fundarrýmið hjá H9 hentar fyrir allt að 8 manns og er búið snjallsjónvarpi, Apple TV, HDMI tengingu, góðri nettengingu og aðgengi að kaffi og tei.
Er auðvelt að tengjast tæknibúnaði í fundarrýminu?+
Já, fundarrýmið er útbúið þannig að auðvelt sé að tengja tæki og hefja fund, kynningu eða vinnustofu án fyrirhafnar.
Er hljóðver til leigu hjá H9?+
Já, hjá H9 er hljóðver til leigu með hljóðupptökubúnaði, þremur hljóðnemum, mixer og skjá. Í hljóðverinu er hægt að taka upp m.a. söng, lestur bóka og auglýsingalestur, viðtöl bæði í hljóði og mynd, og hlaðvarpsþætti.
Hvernig bóka ég hjá H9?+
Þú getur sent fyrirspurn í gegnum vefsíðuna og við svörum fljótt með upplýsingum um laus pláss, bókanir og næstu skref.
Er hægt að skoða aðstöðuna áður en bókað er?+
Já, það er hægt að koma og skoða aðstöðuna. Sendu okkur skilaboð og við finnum tíma sem hentar.
Hafa samband
Vantar frekari
upplýsingar?
Fylltu út formið hér ef þú hefur frekari spurningar varðandi skrifborðsleigu, vilt bóka fundarrými eða hljóðver.
Umsjónaraðili
Arna Þorsteinsdóttir
Netfang
arna@festival.is
Símanúmer
695-7562
Heimilisfang
Hafnarbraut 9, 200 Kópavogur